Kræst! Ég er mesti aumingi sem til er! Jæja, á ballinu sem ég sagði þér frá þá var ég alltaf að reyna safna upp kjarki til að segja henni þetta og þegar ég sagði við hana að ég vildi tala við hana á eftir þegar við myndum skipta um vaktir þar sem við vorum að vinna. Það leið næstum yfir mig bara þegar ég sagði þessa litlu setningu!
Eftir þetta ætlaði ég alltaf að fara reyna tala við hana en alltaf gat ég það ekki, að hluta til af því að hún er nær alltaf með vinkonum sínum, einni eða fleiri.
Mér leið hrikalega um helgina og þegar ég kom í skólann í dag gat ég það ekki heldur. Ég ætla að takast þetta fyrir vikulok!