Það er erfitt að segja því það fer eftir því hvað kom uppá sem að varð til þess að þið slituð sambandinu. Talið almennilega saman og ef þið ákveðið að yta vandamálinu til hliðar þá er það bara gott mál því þið augljóslega saknið hvort annars sem og er eðlilegt.Ef ykkur ekki tekst að leysa þetta hættið þá að lesa. Ef ykkur tekst að leysa þetta munið þá að:
taka einn dag í einu, verið ætíð heiðarleg við hvort annað, berið virðingu fyrir hvort öðru, sér í lagi verið þolinmóð við hvort annað.
Farið svo einhvert saman og eigið rómantískt kvöld bara þið tvö og njótið þess að eiga hvort annað að og vera ástfangin.
Kveðja,
Krusindull