Í fyrsta lagi:
Hlustarðu virkilega á Destiny's Child?

Í öðru lagi:
Mér finnst þetta “skítlega eðli karlpeningsins” dálítið úrelt hugtak, sérstaklega í ljósi þess að ÞÚ ert nákvæmlega það sem virkir þetta “skítlega eðli”, sem er að svara daðri. Ef þú tókst ekki eftir því, þá vill svo til að karlmenn eru kynverur, eins og kvenmenn. Hinsvegar hafa kvenmenn oftar meira gaman af leiknum því þær eru oft of uppteknar við að hata hina ófágaðari hluta karlhugarins.

Þú þarft ekki að vera drusla fyrir að daðra hingað og þangað, en hinsvegar ertu með því að spila á tilfinningar fólks, og þá þarf virkilega að spyrja sig að því hver ber skítlegt eðli. Persónulega finnst mér allt fólk vera fífl, og það eina sem geri það slæmt sé að maður verði mjög sjaldan nokkru skárri sjálfur, og þú færð einmitt plús fyrir að viðurkenna þetta. Þú ert ekki drusla, og ég geri mér grein fyrir því að þú ert hætt þessu núna, en líka SEM BETUR FOKKING FER! ;)

Það var það sem ég vildi segja.

Daður er himnesk list og ekkert nema gott um hana að segja, en eins og erfitt er að tyggja á of oft: Allt er hollt í hófi.

Friður.