hvaðan fá þær þennan einstaka hæfileika
hæfileika til að gera stráka einzog mig geðveika
af hverju gastu ekki bara sagt strax nei?
en í staðinn ákvaðstu á svara mér aldrei!
hélstu virkilega að ég myndi bara ekki fatta þetta?
komist að því að þetta var bara einzog svikaflétta
þar sem einn er fenginn til að halda að hann sé að vinna
dregur hann á asnaeyrunum! þessu verður að linna.
Get ekki kallað þig tík eða hóru þó að þú eigir það skilið
því að þrátt fyrir allt mun ég samt gera allt fyrir þig
hætta að reykja, hætta að drekka nefndu gallann!
ég skal breyta hverjum sem er bara ekki finna aðra kalla
manstu þegar þú sagðir að ég ætti miklu betra skilið?
nærðu þessu ekki, mér er skítsama! ég vil þig!!
hef ekki fundið sona sársauka síðan afi gaf upp andan
því gastu ekki gefið mér svar sem myndi leysa vandan
annað hvort já eða nei, ekki hvorugt eða bæði
gaf þér tíma, gaf þér ást, gaf þér næði
allt sem þú baðst um, en það var víst ekki nóg
en fokkitt, ég vil þig ekki lengur… og þó?
Sama hvað ég reyni ég get ekki gleymt þér
ég vil bara segja þér eitt hér
sama hve oft þú færð mig til að fella tár
þá mun ég samt bíða eftir þér, þó ég þurfi að telja ár
því sama hve mikið ég hata það, þá elska ég þig
shit! ég held að ég elski þig of mikið

veit ekki akkuru ég er að pósta þessu, vill bara ekki senda þetta á ljóð eða hiphop, þekki fólk sem hengur þar. Vill ekki að fólk sem ég þekki sjái etta.

En hérna, þessi texti er sannur, svo að hérna. Ég var að pæla, hvað gæti fengið mig til að gleyma henni… eða alla vega, verða minna hrifinn af henni.

<br><br>TuPac = Ofmetinn rappari