Sko, nú er ég fullorðin manneskja, 25 ára gömul og er búin að vera fullorðin í þokkalega mörg ár. Ég laumaðist út í gærkvöldi, til yndislegs manns sem ég er að kynnast. Hann er skemmtilegur og rómó og það er ekki til ágengni í honum. Svo kem ég heim í morgun (það gerðist ekkert nema það að hann hélt utan um mig í nótt…sagði að hann væri gentleman!) svo um leið og systir mín vaknar (3 árum yngri!!!!) byrjar hún að yfirheyra mig á fullu!!!!!! Þykjast sumir vera eldri??? Ég er ekki fimm ára!!!! Ég á mitt einkalíf og á ekki að þurfa að segja frá því takk fyrir, ég er engin drusla!!!!!!!! Ég er skynsöm manneskja og það er bara hneykslast á mér fyrir að lifa mínu einkalífi…ég er svo REIIIÐ!!!!!!!!