Hvernig væri að gera eitthvað sem tengist því þegar þið kynntust fyrst eða byrjuðuð saman, t.d. gera það sama og á fyrsta stefnumótinu (ef þið fóruð í bíó er hægt að leigja myndina) eða fara þangað sem þið hittust fyrst, sem sagt taka smá rúnt niður minningaveg :0)
Alltaf rómó að vera pínu einangruð, fara í sumarbústað eða splæsa í herbergi á hóteli/gistiheimili - loka sig algjörlega inni, borða kvöldmat með guðsgöflunum uppi í rúmi, saman í sturtu eða heita pottinn, nudd, kertaljós, og enginn sími með.