í þessari litlu frásögn af sambandi mínu þá gæti ég kannski útskýrt eitthvað illa og ef þið viljið vita einhverjar smáatriði þá spurjið þið bara

ég johnjohn er hættur með kærustu minni, og ég kenni kynlífinu um, ekki það að það hafi ekki verið gott heldur það að sambandið okkar var frábært þar til að við gerðum það,

það gerðist fyrst á því tímabili þegar við vorum bæði í prófum og ég fór að vinna strax daginn eftir prófin og ég vann nokkra aukavinnu strax og, á þessu tímabili þá var hún oft hjá bróðir sínum sem býr í hafnarfirði (við búum ekki á höfuðborgarsvæðinu en samt nálægt) eða hjá vinafólki og við hittumst lítið og þegar hún fór að vinna þá lenti hún á sömu vöktum og ég og við áttum frídaga á sömu dögum og aukavinnan var búin hjá mér í bili.

þegar við áttum frí saman þá var hún alltaf upptekin við eitthvað (eins og t.d. fór hún að passa litla frændann sinn í hafnarfirði þótt að hún þyrfti þess ekki) eða hún var alltaf með vinkonu sinni eða hún tók á sig aukavinnu. svona gekk þetta í mánuð þar til að ég fékk nóg af þessu þar sem ég var virkilega farinn að halda að hún vildi hætta með mér, þá sendi ég henni sms um að ég vildi tala við hana og hún svaraði að hún vildi líka tala við mig og ég sendi aftur að við værum búin að vera saman í þrjá mánuði en samt bara tvo þar sem við höfðum ekkert hist almennilega í mánuð, við ákváðum að hittast um kvöldið og tala saman,

ég var að deyja úr áhyggjum allan daginn vegna þess að þessi stelpa ég elska hana virkilega af öllu mínu hjarta og ég var virkilega að vonast að þetta væri bara eitthvað tímabil hjá henni og þetta mundi allt reddast á milli okkar.
um kvöldið þá vorum við talandi í u.þ.b klukkutíma og við hættum saman og ég var eyðilagður þetta kvöld og er enn eyðilagður það er nú reyndar bara tveir dagar síðan þannig að það er engin furða að ég er eyðilagður,

þegar ég spurði hvað gerðist á milli okkar hver væri ástæðan þá sagði hún að hún vissi það ekki og hún hélt kannski að við ættum ekki saman sem par, en það er eiginlega kjaftæði sambandið gekk rosalega vel þar til að við höfðum samfarir, ég held að hún hafi orðið hrædd við afganginn hvað gerist eftir svona stórt skref eins og þetta, hún var hrein mey og ég hreinn sveinn og ég veit að við gerðum þetta of snemma við höfðum samfarir of snemma í sambandinu og ég vildi að við höfðum aldrei gert þetta svona snemma en þetta er bara það sem ég held, það þarf ekki að vera rétt en það er samt líklegt finnst mér

ég vil fá álit fólks hvort þetta gæti verið rétt hjá mér og helst koma með rökstuðning ef það getur en það á líka að segja að það sé rangt hjá mér ef það finnst það, og ef þið viljið vita einhver smáatriði sem gæti hjálpað ykkur að ákveða ykkur þá spyrjið þið mig bara

ég þurfti bara að tala um þetta ég á bróðir sem ég get talað um þetta við og það hefur hjálpað mér og vinur minn og kærastan hans hafa líka hjálpað mér alveg helling