Jú jú, rass og brjóst eru góð í hófi. En ég hef aldrei skilið háa skó, naglalakk og heví make-up. Ég held að sumar stelpur séu að leggja of mikið í einhverjar útlitskröfur sem strákar gera ekkert endilega. Ég meina, hver pælir í hárgreiðslum og naglasnyrtingum? Mér finnst allt of mikið um að stelpur séu klæddar og málaðar í sama stríðsbúninginn, svo að maður þekkir þær varla í sundur, og svo er þetta slutty lúkk í ofanálag. Kommon, sýnið smá karakter og klæðið ykkur eins og ykkur sýnist. Slöppum aðeins af og verum við sjálf.