Hvað ertu búinn að vera með kærastanum þínum lengi og hversu alvarlegt er þetta hjá ykkur?
Og ef það er einhver alvara í sambandinu sem þú ert í, ertu tilbúin til þess að fórna því fyrir besta vin kærasta þíns?
Ég reikna með því að kærastanum þínum myndi sárna, en ég sjálf myndi líka reikna með því að besti vinur kærasta þíns vilji þig ekki (as in að vinir fara venjulega ekki í fyrrverandi vina sinna, sérstaklega bestu vina sinna).
En þúst, ég veit ekki. Kannski eigiði vel saman, kannski kemur í ljós að kærastinn þinn er betri. Twisted staða.
Bætt við 23. júlí 2010 - 11:53
Já, segjum sem svo að þú myndir hætta með kærastanum þínum og byrja með besta vini hans og svo kæmi kannski í ljós að þið ættuð ekki saman eða eitthvað, eða þetta væri bara smáskot og þú værir ennþá hrifinn af kærastanum þínum og vildir hann aftur. Það er ekkert sjálfgefið að hann tæki þig aftur.
(þetta var svona hjá stelpu sem ég þekki og hún skildi ekkert í því af hverju hann vildi ekki taka sig aftur, lol).