10. Hvað þú ert í raun búinn að sofa hjá mörgum…við spurjum, en við viljum ekki actual töluna :)
Samt eyðiði hálfum deginum í að væla um hreinskilni. Ekkert vera að spyrja okkur þá, you reap what you sow.
9. Í hvað peningurinn þinn raunverulega fer..það pirrar okkur bara
Í þig?
8. Hvað mamma og pabbi gera enn fyrir þig. Við VILJUM að þú þvoir eigin þvott SJÁLFUR
The fuck?
7. Hvað þú hræðist…ekki segja það hreint út
Eigum við semsagt að tala í gátum? Nema þegar við eigum að vera opnir eins og bók? Má elskhugi þinn ekki vera hræddur við köngulær né láta mömmu þvo naríurnar sínar? Ertu viss um að viss um að við séum ekki að hengja okkur aðeins á óraunhæfri ídealískri hugmyndafræði hérna?
6. Hvað þu gerir á klósettinu…ekkert meira óheillandi en að taka upp símann “já neinei er ekki busy, ég er bara að skíta sko”
Er reyndar sammála þér hér. Hvaða fokking górillur og dusilmenni ert þú að umgangast?
5. Hvað vinir þínir gera sér til skemmtunar með öðru kvenfólki
Eins og að þú myndir ekki komist að því anyways.
4. Hvort þú hefur sofið hjá hinni eða þessari. Nei
Ég er farinn að skynja eitthvað þema hérna. Annaðhvort er kallinn þinn algjör api þegar það kemur að því að velja umræðuefni eða að þú spyrjir ógeðslega heimskulegra spurninga.
3. Hélstu framhjá í fortíðinni í gömlum samböndum? Haltu því fyrir sjálfan þig…the past is the past :)
Þetta er líklega það heimskulegasta sem ég hef lesið lengi. Kærastinn þinn er lyginn og svikull durtur og þú vilt bara að hann haldi því fyrir sjálfan sig? Því, tja, það sem þú veist ekki særir þig ekki? What the christ kona?
2. Við viljum ekki að þú gangir um í bolnum sem þín fyrrverandi gaf þér
Ég á bol sem mín fyrrverandi gaf mér. Við erum ágætis vinir núna, en þegar ég horfi á bolinn hugsa ég ekki um hana, ég hugsa um david fokking hasselhoff. Ég er nokkuð viss um að flestir deili því sentimenti, þ.á.m. núverandi kærastan mín.
Þú virðist vera með eitthvað thing varðandi fyrrv. kærustur, en ef þú höndlar ekki að sjá eða snerta hluti sem umrædd gella hefur einnig snert þá er ég viss um að það séu til einhverskonar lyf og merðferðir fyrir því.
1. “Sko, mín fyrrverandi svaf alltaf á þessari hlið” Ertu að REYNA að pikka fæt? við viljum ekki vita neitt um þína fyrrverandi
Já. Ég er búinn að ná því, er þessi fyrrverandi kærasta hans mamma þín? Því það eru einhverskonar djúp sálræn vandamál sem þið stöllurnar þurfið að leysa, svona áður en að þú drepur aumingja gaurinn.