Úff, erfið spurning þar sem ég og minn höfum verið saman í rúmlega 3 ár:) En það sem mér dettur í hug núna er…
Í stuttu máli: Viltu byrja með mér?:)
Í löngu máli: Þegar við byrjuðum aftur saman eftir smá tíma í sundur í sumar(jeje ekkert vera að segja mér neitt um það) og ég fékk smsið “Viltu byrja með mér” eftir að við vorum búin að vera í uþb 3-4 mánuði saman í annað skiptið og þegar ég fór á facebook þá var hann búinn að senda mér beiðni um að vera í sambandi með honum þar. (Vorum s.s. aldrei “facebook saman”
Flókið ég veit en,, haha:)
Bætt við 18. janúar 2010 - 00:45
AH nei eitt í viðbót!! Smsið sjálft er kannski ekki svaka rómó en mér finnst það miðað við atburðinn:) Verð að monta mig smá þótt að ég fái pottþétt skítköst.. saaawry:)
Vorum búin að vera saman í 2 mánuði, búum í sitthvoru bæjarfélaginu, ég var að koma heim eftir vinnu kl hálf 12 kvöldið fyrir afmælisdaginn minn og alltaf eftir vinnu töluðum við saman á msn.. hann var ekki á msn og ég fékk smsið “Ertu ekki örugglega vakandi? Ég fer alveg að koma:)” og 10 mínútum seinna, á slaginu 12, bankar hann á útidyrahurðina, með gjöf í hendi og segir til hamingju með afmælið:)