Hafiði einhverntímann fallið fyrir besta vini/vinkonu ykkar ? Ég persónulega hef ekki gert það, en mér skilst að besti vinur minn hafi einhverjar tilfinningar til mín :/
If you can make a girl laugh, you can make her do anything
En já, á tiltölulega auðveldara með það meira að segja. Enda eru vinkonur mínar manneskjur sem ég valdi til að vera vinkonur mínar, heng ekkert í kringum leiðinlegt fólk. Meiri líkur á því að maður falli fyrir einhverjum sem manni líkar við. Ef þú skilur hvað ég meina.
jebb =D Ég og systir erum búnir að vera bestu vinir síðan við fæddumst sama dag, á sama tíma, deilandi sömu mjöðm. Byrjuðum samt ekki saman fyrr en þegar við vorum 15 ára og vorum ung og létum eins og kanínar ^^. Í dag eigum við 3 börn =)
Ég held að ég gæti það ekki, ef ég lýt á strák sem besta vin minn þá verður hann svona “BARA vinur” týpa hjá mér. Þó það sökki stundum því venjulega eru bestu vinirnir alltaf yndislegastir. ;P
jáá.. ég varð hrifin af besta vini mínum og hann af mér og við voru saman svona allt í allt næstum 2 ár og þá hættum við saman og erum núna alveg svona sæmilegir vinir :)
Yush, kynntist strák sem varð besti vinur minn og við byrjuðum saman og voru það í eitt og hálft ár, þá sagði hann mér upp vegna þess að hann bar engar tilfinningar lengur til mín aðrar en bara vinátta. Erum enn mjög góðir vinir.
jebb…tvisvar meira að segja, fyrra skiptið fór ekki svo vel, fórum einu sinni heim saman eftir djamm og svo bara einhvernvegin trosnaði uppúr vinskapnum, hann á kærustu núna. Seinna skiptið fór mjög vel, búin að vera með honum í 2 ár :)
ég prófaði það fyrir nokkrum árum og það endaði ekki mjög vel, í dag tölum við aldrei saman og eiginlega bara þolum ekki hvort annað og getum ekki verið í sama herbergi án þess að rífast eða hundsa hvort annað ..
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..