Hmmmm…ok, það er rosalega erfitt fyrir okkur að vita hvað þú ættir að gefa henni þar sem við þekkjum hana ekki neitt.
Ég mæli með að þú farir bara í Kringluna, Laugarveginn eða Smáralind og skoðir í búðum þar…gáir hvort þú finnur ekki eitthvað.
Annars get ég komið með nokkrar hugmyndir :)
Þú getur gefið henni svona körfu með einhverju sjampói, body lotion, freiðibaði og einhverju slíku. Kaupir það allt saman í pakka. Er t.d. í The Body shop en getur verið soldið dýrt þar þannig það er til svona pakkar ódýrari einhversstaðar.
Svo gætirðu kanski gefið henni einhverja sæta minnisbók (ef til vill með mynd af hestum) og eitthvað smá með því.
Svo er allaf hægt að gefa henni hálsfesti, armband, eyrnalokka eða eitthvað slíkt -það er að segja ef hún gengur með svoleiðis. Ef hún gengur aldrei með neitt svona þá gengur það kanski ekki. En ef hún er stundum með skartgripi þá er rosalega mikið úrval í Skarthúsinu. :)
Svo náttúrulega ef þú veist hvernig myndir hún fílar þá geturðu gefið henni DVD disk…það sama á við um geisladisk ef þú veist að hún fílar einhvern tónlistarmann en á ekki diskinn (eða tónlistina) geturðu gefið henni það :)
Svo geturðu kanski gefið henni einhvern sniðugan bolla. Með einhverri skemmtilegu munstri eða áletrun (eða mynd af hesti?) :)
Svo hef ég líka séð mjög flotta klúta í Tiger…ef þú heldur að hún vilji ganga með svoleiðis :)
Mér dettur ekki meira í hug, en um að gera að fara bara í búðir og skoða þig um, bara að finna eitthvað lítið og sætt :)
An eye for an eye makes the whole world blind