Það byrjar á því að ég kynnist stelpu sem er svo fokking awesome að hún skítur peningum og mígur bjór. Við dettum í það niðríbæ, ríðum uppá barborði svo okkur er kastað út og tökum þá taxa til Keflavíkur. Þar förum við í næsta flug sem vill svo til að er til Parísar, gerum grín að kaþólikkum allt flugið og förum svo beint að skoða Eiffelturninn. Við tökum lyftu upp á topp (og ef það er ekki lyfta þar þá fokkin flýgur hún með mig þangað upp) hún mígur bjór á París.
Svo sofnum við í húsasundi, vöknum helþunn einhverjum tímum síðar og gerum okkur grein fyrir því að við erum í París. Án þess að hugsa neitt nánar út í það FRIGGIN TELEPORTAR HÚN OKKUR til RÓM, þarsem við dettum í það með páfanum og gerum öll saman grín að kaþólikkum.
Ég er ekki alveg viss hvað gerist næst en við rönkum við okkur á kannabiskaffihúsi í Amsterdam og eyðum nokkrum dögum þar kúrandi útí horni að hlusta á Bob Marley. Þegar við loksins höfum fengið nóg förum við bara til Kína þarsem við finnum MÖRGÆSIR sem höfðu villst, skellum á þeim bakpoka og sendum þær á Torg hins himneska friðar (dulbúna sem ferðamenn, þúveist, bakpokarnir!) þarsem þær sprengja allt upp með dýnamítinu sem var í bakpokunum.
Þegar hér er komið við sögu höfum við verið saman í tvær vikur og allt leikur í lyndi. EN ÞARSEM ÖLL ÁSTARSAMBÖND, ÁN NOKKURRA UNDANTEKNINGA, hit a snatch, þá fréttum við skyndilega að amma hennar hafi verið tragically myrt af geðveikt leiðinlegum gaur svo við förum aftur til Íslands og FOKKIN MYRÐUM HANN MEÐ FRIGGIN HER AF DÓDÓFUGLUM.
Svo eyðum við ári í Indlandi að reykja gras og hindúast eitthvað, nema aðrahverja helgi að við förum annaðhvort á fyllerí í London eða rave í Auckland, og svo hef ég því miður ekki planað þetta draumasamband lengra.
En þúveist, gaur. Draumasamband? Ertu fáviti?