Hegðun hans gefur ekkert til kynna um það eða neitt. Ég veit líka alveg að hann gerir ekki baun og í mesta lagi horfir (sem er alveg fínt fyrir mér, það er ekkert að því :D). Líka í hvert skipti sem ég hef særst við eitthvað frá honum, þá hefur hann tekið því alveg rosalega illa og komið verr út úr því en ég…þannig að hann myndi ekki gera neitt.
Hef samt lent í framhjáhaldi í alveg .. 3 af þeim 5 samböndum sem ég hef verið í, þannig að það þrýstir smá á að ég sé kind of þessi stelpa sem á það til að velja stráka sem eru tjaa, ekkert sérstaklega ‘faithful’.
Þannig … já (:
Ég veit að það er kjánalegt að líða svona, en samt er ég svo hrædd um að lenda í rugli aftur, þótt ég viti að hann sé alveg skotheldur.