Hversu margir hér eiga eða hafa átt kærustu/kærasta sem viðkomandi kynntist í gegnum eða vegna huga.is? Viðurkennið nú syndir ykkar, ykkur mun líða betur á eftir ;-)
Ég sjálf er svo pro að ég tek bara facebook á þetta ;D
Ég kynntist mínum á huga hehe… vorum bæði stjórnendur á sama áhugamáli. En er nú ekki að viðurkenna neitt, held að þetta hafi ekki farið framhjá nokkrum manni :P
Einu sinni af einhverri undarlegri ástæðu ýtti heit stelpa á link á bloggið mitt sem mátti finna á hugaprófælnum mínum. Þar sá hún færslu sem henni fannst kjánaleg og afþví henni langaði að rífast addaði hún mér á msn og fór að rífast við mig.
“Kynntist” fyrstu kærustunni minni upprunalega á huga, en kynntist henni svo náttúrulega almennilega þegar ég fór að hitta hana aðeins og hanga með henni, þannig að ég veit ekki alveg hvernig maður ætti að telja það. Hinsvegar hefur maður alveg kynnst nokkrum stelpum hérna í gegnum huga, if you catch my drift :-p
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..