nýbúinn að höggva bút af putta mínum með öxi, sem að tekur sinn tíma í að gróa, og svo braut ég óvart plaststól með sömu hendi í gær, þannig að samband mitt og hennar er frekar slakt eins og er. hún er í mikklum þjáningum þessa dagana og það blæðir af og til úr henni, en ég get lítið af því gert þar sem að þetta er bara náttúrulegur hlutur, það eina sem ég reyni að gera er að vera bara rólegur og hugsa vel um hana meðan henni batnar, set á hana krem og svona fínerí til að minnka sársauka hennar og svo bara liggjum við saman og horfum á bíomynd eða spilum tölvuleiki saman, vinnum saman og svona.. eigum allt sameiginlegt og megi menn vita að ég hef alldrei verið jafn ánægður með samband á æfi minni. enda hef ég eytt öllum dögum æfi minnar með henni og mér þykir mjög vænt um hana. hef alltaf hugsað vel um hana en núna nýlega hefur álag í vinnuni minni og hvað annað valdið stressi og þarmeð gerðust þessi blessuðu slys. og að sjálfsögðu um leið og ég meiddi greyið fór ég beint á spítala til að sjá í hvernig ástandi hún er. annars erum við mjög hamingjusöm í dag. þarf bara að gefa henni tíma til að jafna sig :)
perhaps it's your imperfection that allows you free will