weell ég var í sambandi í 18 mánuði eða eitt og hálft ár… svo hætti hann með mér algjörlega uppúr þurru á msn… já ég veit hann er fífl, ég veit það í dag.
en ég vissi ekkert betra en hann á þeim tíma, svo ég grét nánast non stop í 4 mánuði (október,nóvember,desember,janúar) eða þetta gerðist í byrjun október, og ég hætti ekki að GRÁTA þegar ég heyrði e-h lag, sá e-rja mynd eða e-h fyrr en í janúarlok…. svo jafnaði ég mig hægt og rólega upp frá því, þegar allir fóru að þora að segja mér hvað þeim finndist í raun og veru um hann, og það kom í ljós að fjölskyldan mín þoldi hann ekki og vinir mínir ekki heldur.
svo það tók mig í rauninni hálft ár, eða þriðjung sambandslengdarinnar…
- en það hjálpaði mér líka mest þegar ég varð hrifin af öðrum og var hafnað, þá hafði ég e-h annað til að hugsa um…