I can't help it!…I'm Metally Insane!
Spes atvik
Ég held að þetta atvik tengist Rómantík en gæti líka farið undir Dulspeki eða eitthvað fer eftir hvað þú trúir á. En allavegana þá kl. 9 um morgun þessa dags þegar ég ætlaði í skónna mína sem voru út í horni þá fann ég fyrir eitthverju. Ég náttúrlega fór úr vinstri skóinum og þar var kveikjari skreytt með einu stóru hjarta og svo fleirri bleik hjörtu. Ég spurði alla á heimilinu hvort eitthver ætti hann en enginn kannaðist við hann né nota kveikjara. Svo um daginn áður kom enginn gestur inn í húsið nema foreldrarnir mínir, ég veit það útaf ég var heima allan dag að taka til eftir flutning. Ég átti erfiðan dag á sunnudaginum útaf persónulegum ástæðum og einum degi síðar finn ég þennan kveikjara í skónum mínum. Ég bý lengst út í rassgati og ég labbaði nokkra kílómetra á sunnudeginum þannig það er ekki möguleiki að kveikjarinn var í skónum þá. Svo ég spyr á ég stalker eða leyni aðdáanda? ef svo er og sá sem gerði þetta er að lesa vinsamlegast talaðu við mig XD.