Vakna, fá ykkur morgunmat saman, fara saman í sturtu, klæða ykkur, fara í göngutúr úti í náttúrunni (heiðmörk t.d? eða bara stað sem ykkur dettur í hug að fara á) koma svo við á kaffihúsi/bakaríi og fá ykkur smá snarl, fara svo að versla í matinn( finnið ykkur eitthvað sem tekur aðeins lengri tíma að elda en 10 mín :p) eldið saman og gangið frá öllu áður en þið setjist við borðið að borða, kveikja á kertum og slökkva á öllu nema útvarpstækinu og setja disk á sem er rómantískur og hafið lágt stillt en samt þannig þið heyrið aðeins.
Gangið saman frá eftir matinn og getið jafnvel fengið ykkur ís eða eitthvað í eftirétt, komið ykkur vel fyrir í sófanum/rúminu og setjið góða mynd á, kúrið aðeins saman og farið svo aftur í sturtu/bað ef það er til staðar :) farið svo inn í rúm og dekrið við hvort annað, nudd t.d með olíu, kremi eða einhverju sem ykkur langar að nota, nudda bara frá A-Ö(þarft engann veginn að vera góður nuddari til þess, má líka bara strjúka :)..) Tala blítt til hvors annars :) Svo auðvitað er ekkert betra en að elskast saman eftir svona góðann dag og sofna svo vært og rótt :p
Btw. mæli með að tölvurnar verði alveg látnar í friði, símar og vera bara alveg 2 útaf fyrir ykkur :) En þetta er allavega ein hugmynd :P