Haha, ok.
Eftir að við vorum búin að vera saman í svona 3 mánuði, kom fyrrverandi kærastan hans til landsins og vildi byrja með honum aftur. Hún vildi miklu alvarlegra samband við hann en ég, þannig að ég ákvað bara að víkja og vera betri manneskjan fyrir vikið. Nema hvað, að þau ætluðu eitthvað að byrja aftur saman en hann vildi hana svo eiginlega ekkert og vildi mig aftur. Ég bara -fine, og við byrjuðum aftur saman.
Svo voru svona 2-3 bestu vinir hans alltaf að reyna við mig og það varð voða mikið drama, þannig að við fjarlægðumst aðeins en hættum aldrei alveg saman. Síðan hætti ég með honum af því að ég var þreytt á öllu dramanu og vildi ekki slíka gríðarlega skuldbindingu sem hann; hann vildi ss að ég myndi flytja með honum til Bandaríkjanna. Svo einhverjum mánuði seinna hittumst við aftur og byrjuðum semí aftur saman, en að lokum þurfti ég að fara til Íslands og hann varð eftir.
Mjög fyndið að sjá þetta skrifað niður.