sko það er voða erfitt að gefa þér einhverjar ráðleggingar miðað þessar upplýsingar.. aldur ? hver er aldursmunurinn á milli ykkar ? hvað væri hægt að gefa þessari gellu í einkunn frá 0-10 (útlitslega séð) ? eru mikið af gaurum á eftir henni ? hvar stendur þú á skalanum 0-10 ? passaru uppá útlitið ? ertu sjálfsöruggur ? hvers eðlis er þetta vinasamband, ertu svona hommavinur sem hlustar á vælið í henni, eða djókarðu í henni og færð hana til að hlægja ?
þetta eru allt atriði sem skipta máli.. kanski ekki öllu máli, en samt þó nokkru.
í fyrsta lagi þarftu að hætta að vera vinur hennar !
það er alveg hrikaleg aðstaða að vera einhver hommavinur sem hlustar bara á vælið í henni (i know, been there), til þess eru sálfræðingar. Ef þú ætlar að vera sálfræðingur hennar, þá er eins gott að þú rukkir hana 5000 kall á tímann !
í öðru lagi, þá verðuru að hætta að vera ástfanginn af henni. Þá fyrst er einhver séns að hún geti byrjað að hafa áhuga á þér. Veit þetta hljómar fáránlega.. en það hefur engum tekist að skilja konur hingað til hvort eð er (ekki einu sinni þær sjálfar).
Eina sem konur vilja er Það sem þær geta ekki fengið.
Þó svo að þú reynir að fela það fyrir henni að þú sért ástfanginn af henni þá veit hún það samt, konur eru 10x næmari en strákar og þær finna svona hluti á sér. Þess vegna skiptir öllu máli að þú köttir á ll samskipti við hana eins og þú getur, nema til að djóka í henni.
Farðu svo að veita hinum stelpunum sem hafa áhuga á þér meiri athygli.
Þú verður að geta sýnt þessarri gellu sem þú ert ástfanginn af að þú eigir þér líf fyrir utan að vera með þráhyggju yfir henni.
Skelltu þér í ræktina (ef þú gerir það ekki nú þegar), farðu að njóta lífsins. Um leið og þín útgeislun sýnir að þér líði vel og sért sjálfum þér nógur, þá laðast þær að þér.. vittu bara til.
Og ég bið þig, ekki bara sitja hérna og lesa þetta yfir og fordæma allt fyrirfram sem ég segi. Prufaðu þetta sjálfur að eigin raun, og upplifðu þinn eigin sannleika.
Þessir hlutir gerast ekki ef þú ætlar bara að leggja spilin á borðið, Það er vísasta leiðin til að klúðra þessu.
láttu hana koma til þín. Hver sem hún er. En það er á þína ábyrgð að vera “girnilegur” í hennar huga. Þá ertu sannur veiðimaður.
Good luck buddy