hann er eitthvað voðalega skrítin núna undanfarið… hitti hann eitt kvöldið og þúst hann sagðist vera hrifinn af mér og allt var bara æðislegt hjá okkur, svo kvöldið eftir þá talar hann við mig og segist bara vilja vera vinir. Hann saðgist vera hræddur við sambönd og vildi ekki samband, sagðist svo ekki vera hrifinn af mér, var á góðri leið með það en langar ekki að vera það og vill bara vera einn og fá speis.
Ég er bara við það að gefast upp á þessu… ég er búin að vera ða hitta hann í 3 mánuði núna, fyrstu 2 mánuðirnir voru vesen því þá vorum við ekki beint að deita, en svo kom þessi hrifning og allt breyttist og svo blockar hann allt í einu á mig, vill allt í einu bara koma í bíó eins og einhverjir vinir eða eitthvað…
Bætt við 15. janúar 2009 - 13:58
Fokk hvað ég er samt búin að eyðileggja þetta fyrir mér!! Ég fékk það svo útúr honum að hann vissi ekkert hvað hann vildi og vissi ekki hvað væri að hjá sér og ég fór eitthvað að segja honum að hann ætti auðvitað að vera með mér af því bla bla bla.. skiptir ekki og svo fór ég að setja honum einhver mörk og sagði að ég myndi gefa honum svona viku og ef hann verður eins eftir viku að þá væri þetta bara búið… sem náttla þýðir að hann er búinn að missa allan áhuga á mér núna ekki satt??? OHH ég er asni!