Hvað finnst ykkur vera rómantískt?? Að liggja upp í rúmi með þeim þið elskið eða vera útí í rigningu t.d. Mér persónlega finnst æðilslegt að ligga með elskunni minni upp í rúmi og kela og hlusta á rómantíska tónlist og e-ð!!!
Rómantík er eitthvað sem hver og einn skapar hverju sinni með þeim einstakling sem viðkomandi elskar. Rómantík er ekki einhver einn ákveðin atburður eða aðgerð heldur er það eitthvað sem að fólk skapar með sér. Rómantík er huglæg og út frá henni skapast svo kannski aðstaða sem hægt er að segja að sé rómantísk eins og t.d. að vera út í rigningu með þeim sem þú elskar. Einstaklingar geta átt rómantík með sjálfum sér en að sjálfsögðu er það sterkara þegar tveir deila með sér rómantíkinni. Mér finnst fólk ofboðslega bundið í því að halda að rómantík er “þegar við t.d. förum í pottinn í sumarbústaðnum með rauðvín og svo elda ég góðan mat fyrir þig”. Gott og blessað það getur verið rómantískt en það getur líka verið ofboðslega rómantískt að vaska upp saman. En skoðun mín er enn sú að rómantík er eitthvað sem einstaklingar skapa með sér og það er huglægt sem getur tengst einstaka aðgerðum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..