Og allt endaði með því að sambandinu var slitið, hann sagðist ekki elska mig eins og hann gerði fyrst…við vorum saman í meira en 2 ár … og þessu var slitið sí svona … án þess að hugsa út í alla kostina og gallana fyrst! ..
Núna líður mér svo illa, get varla borðað, varla sofið og brotna niður á kveldin..
Mér langar varla að lifa lengur… ég elskaði hann svo mikið og gerði allt fyrir hann…
En núna fæ ég það á tilfinninguna að hann hafi ekki elskað mig jafn mikið og ég elskaði hann… því hann segjist ekkert hafa liðið svo illa þegar við hættum saman… Hann horfði á uppistand kveldið sem við hættum saman .. og þetta fór ekkert í hann nema hann hló ekki yfir því …
Mér finnst hann taka þessu miklu betur en ég..
Hann er bara að tjilla heima hjá sér og slappandi af og tekur þessu bara þokkalega vel … meðan mér líður eins og
það hafi verið rifið úr mér hjartað, tætt það í sundur og gefið mér það aftur…
Afhverju er þetta svona erfitt…
Plís vitiði um góð ráð til að komast yfir svona! … ég get þetta varla lengur! :'( !!
kv. Kate
~ Systematic, Sympathetic