Hæ,
þar sem ég hef mjög mikla reynslu af þessum aðstæðum sem þú ert í ákkúrat núna þá leið mér eins og ég væri skyldug til þess að svara þér og segja eitthvað sem gæti hjálpað þér, en ég veit betur en það. Það er ekkert ákkúrat núna sem getur hjálpað þér almennilega, þetta er hlutur sem þú þarft að horfast í augu við sjálf og komast yfir.
Það mun taka langan tíma og mun vera erfitt, en ef það er eitthvað sem ég veit, og vinur þinn vissi, og þú sjálf veist innst inni ef þú hugsar þig virkilega mikið um, að þetta er ekki þér að kenna.
Þú veist að stelpur hafna strákum út um allan heim á hverjum degi. Þetta er hlutur sem gerist, fólk er ekkert alltaf hrifið af fólki og maður vill ekkert byrja með öllum, þannig er það bara. Milljónir manns fást við höfnun á hverjum degi, og það sökkar og það er sárt, en fólk kemst yfir það.
Það sem fólk kemst hins vegar ekki alltaf yfir eru einhver mun dýpri andleg vandamál, þunglyndi og annað, sem hrjáir einstaklinginn og fær hann til þess að gera eitthvað eins og að svipta sig lífi. Já, þú hafnaðir honum, en það er alls ekki ástæðan fyrir því að hann er ekki hérna í dag, það er eitthvað mun meira þar á bak við.
Farðu vel með sjálfa þig og gangi þér vel. Mátt endilega hafa samband í gegnum einkaskilaboð ef þú vilt tala eitthvað meira um þetta, ég hef sjálf verið í rosalega svipuðum aðstæðum og er hérna fyrir þig ef þú þarft einhvern að tala við sem getur skilið það sem þú ert að ganga í gegnum.