**Ungur drengur sendi mér ljóð sem hann vildi láta flakka hér inn nafnlaust. Hér er það**

“Ég Elska Þig.

Það eina sem ég bið þig um er að elska mig,
það eina sem ég óska er að við munum alltaf vera saman.
Það er ekki hægt að hætta að hugsa um þig,
því með þér er alltaf svo gaman.

Ég mun alltaf vera vinur þinn,
ég mun alltaf vera traustur.
Þú munt alltaf vera vinur minn,
ef þú ferð vestur þá fer ég ei austur.

Aldrei fara frá mér,
vertu frekar hjá mér.
Kysstu mig og ég kyssi til baka,
ég læt engann villimann þig taka.

Ég stend með þér í blíðu og stríðu,
þó ég aðeins fann þig á vefsíðu.
Þú ert ljósið þú ert ástin mín,
ég vil vera þinn, villt þú vera mín ?.”