Allt of lítið af upplýsingum, er hún ein eða með vinum (karlkyns) er hún með eithvað að drekka, hringur á puttanum, hvernig er hún klædd og hvað er hún búin að vera að gera síðan þú komst þangað inn ?
Segjum sem svo að hún sé ein, með einhvern flottan drykk vel puntuð og klædd og bara búin að vera sitjandi þarna að drekka drykki seinasta korterið síðan maður kom inn með engan hring á hendinni.
Þá myndi ég giska að hún hefði ætlað að gera eithvað með einhverjum sem skipti hana máli, því hún væri of vel klædd fyrir druslulegt hössl á djamminu og of einmana til að hafa farið með vinkonunum út í cocktail party, þá gerir maður ráð fyrir að plönin hennar fyrir kvöldið hafi farið út um þúfur og líklega einhverjum öðrum að kenna en henni, hún er líklega einmana, líður eins og hún hafi verið yfirgefin og leiðist óstjórnlega mikið.
Þá er gott að vera fyndinn, en ekki um of, eða gamansamur og byrja kanski á einhverjum spurningum um hvað í ósköpunum hún sé að gera þarna og afhverju hún sé ekki að skemmta sér, þar sem hún er með drykk væri ekki vitlaust að spurja hvort hann væri góður og ef þú kannt að tala endar það með því að þið eruð tvö að drekka eins drykk að tala um hvað hann er góður og þið eruð ömurleg að vera alein á laugardagskvöldi niðrí bæ talandi við bláókunnuga manneskju á bar eins og í verstu hollywood mynd.
Síðan er bara undir manni komið að redda kvöldinu fyrir hana með einhverju svakalega sniðugu og það er í svoleiðis kringumstæðum sem það er geðveikt sniðugt að kunna að dansa eða vera með sjúklega stórt undir sér.