Hér er bréfið:
Halló
Ég er semsagt að tala við þessa stelpu sem ég er farinn að hafa svoldinn áhuga á og hún á mér. Málið er bara að við erum bara í þessu msn og sms sambandi og ég bara einfaldlega hef ekki hugmynd hvernig ég á að taka fyrsta skrefið vegna þess að ég er tiltölulega nýfluttur í nýjan bæ og segjum bara að ég þekki ekki marga svo ég er pretty much einn hérna og því hræðist ég framhaldið, ég einfaldlega á enga vini þannig séð hérna.
En samt er hún með áhuga á mér vegna þess að já segjum bara að ég hafi afrekað svoldið í ýmsu og er að flestra mati mjög myndarlegur strákur en ég hef bara ekki þennan félagspakka og þar af leiðandi held ég að henni muni finnast ég mun óspennandi þegar hún kynnist mér ennþá nánar því ég er ekki þessi gaur sem fer í bíó, á íþróttaleiki og jafnvel á skólaböll, en hefði samt gaman af því í góðum félagshóp. En er samt mikil félagsvera og á mikið af frábærum vinum annars staðar og er í rauninni ekki þessi “feimni gaur”.. hef bara ekki verið að fitta hérna.
Hún er þessi sæta stelpa, notar kossakalla o.s.frv. í óhóflega magni stundum eða eins og sumir kalla gelgju en hún er samt mjög greind og þroskuð stelpa, hún er 15 og ég 17.
Þannig ef þið hafið eitthvað í pokahorninu, endilega deila því hérna því ég hef grun um að það séu margir gaurar í þessari stöðu(:
Gaui