HJÁLP
Ég þekki strák, svona eiginlega besti vinur minn.. ég hafði aldrei neinar tilfinningar til hans. En svo allt í einu varð ég hrifin af honum.. dáldi held ég.. En hann var hrifin af annarri en ég var ekkert öfundsjúk því hún sagðist ekki vera hrifin af honum..
Ég varð bara enn meira hrifnari af honum og meira og er enn. En í gærkvöldi frétti ég að hún er hrifin af honum..! :(
Neineinei.. ómaði í hausnum mínum.. NEI..!!! Ég varð tóm..hjartað bara tæmdist á millisekúndu! Engin veit að ég er hrifin af honum.. og til að gera allt verra er systir mín líka hrifin af honum..:(
Ég er ein taugahrúga.. hvað get ég gert..??!!!