Sæl vængbrotna sál.. ;)
Töfraorðin hérna eru “fyrrverandi” og “moved on” - og þú ættir að pæla aðeins í þeim og hrista fortíðina burt af herðum þér.
Fyrrverandi er greinilega farinn inn í framtíðina og hefur leyft sér að skoða heiminn með opnum augum þess sem ekki vill dvelja í fortíðinni. Það ættir þú sjálf að gera líka sem fyrst því þú mátt alls ekki leyfa sjálfri þér að eyða tíma í að syrgja og gráta það sem liðið er og kemur hugsanlega aldrei aftur til baka.
Þessi gaur sem þú ert að deita er kannski ekki draumaprinsinn - en með því að bera alla saman við þinn fyrrverandi eða með því að eyða allri þinni orku í að pæla í því hvað fyrrverandi er að gera - þá á enginn séns í að verða þinn núverandi eða þinn framtíðar.
Hættu að ergja þig á X og byrjaðu að byggja upp rústirnar, gerðu þær sterkar og undirbúðu þig undir framtíðina sem getur verið bæði björt og falleg - og dimm, drungaleg og þunglamaleg.
Framtíðin verður dimm og drungaleg fyrir þig ef þú heldur áfram að velta þér uppúr gamla gaurnum, gaur sem þú ert ekki lengur með og þér kemur í raun ekkert við hvað er að gera.
Framtíðin verður hins vegar björt og falleg ef þú ferð eftir þínum eigin orðum - move on - og leyfir þér að skoða stráka í kringum þig með opnum huga og góða framtíð að markmiði - góða framtíð með kannski gaur sem á eftir að gera þig miklu hamingjusamari en X hefði nokkurn tíman getað.
Kveðja:
Tigercop sem ráðleggur öllum að halda áfram með líf sitt, gera það besta sem hægt er að gera hér og nú við það sem maður hefur í hendi sér en ekki eyða tíma og orku í það sem er liðið og kemur ekki til baka.