Já..þú gerðir úlfalda úr mýflugu en það þýðir samt ekki eingöngu að kenna þér um þetta. Gerir þetta bara enn verra og erfiðara. Hann hefði alveg eins getað kynnt þig fyrir henni. Annars verðuru að sleppa honum. Ef hann raunverulega elskar þig þá kemur hann til baka og lætur smá afbrigðisemi og misskilning stoppa sig. Ef þú ert æst í að fá hann til baka, hringir í hann oft og svona verður hann æstari í að komast í burtu því þetta verður of yfirdrifið. Láttu hann bara vera því þá fær hann tíma til að hugsa sig um og taka ákvörðun. Ég veit að það er erfitt en þú verður að sætta þig við það ef að hann tekur þig ekki aftur.
Og aftur, alls ekki kenna þér svona mikið um þetta. Það er nærri því alltaf tveimur að ,,kenna" þegar einhvern ágreiningur er á milli tveggja. Persónulega finnst mér þetta líka of lítil ástæða til að segja annari manneskju upp.
Reyndu nú að eyða miklum tíma með vinum þínum og að skemmta þér! Ekki sitja heima og hugsa um þetta…
Gangi þér vel!
An eye for an eye makes the whole world blind