Ussss… skammastu þín strákur!
Gerir þú þér virkilega ekki grein fyrir því hvað þú ert að gera ljótan hlut gagnvart saklausum kærastanum hennar - settu þig sjálfan í spor hans..? Hvernig myndi líða ef þú værir hann? Sýndu smá þroska og virðingu og mundu að þú gætir sjálfur lent í sama hlut síðar meir, myndi þér líka það ef einhver væri að pissa við fótinn á þínum ljósastaur? Nei, örugglega ekki.
Eitt það ljótasta ever er þegar einhver er að stinga sér til sunds í sundpolli sem er forboðinn og banaður. Hún er ekki á lausu, opnaðu augun og áttaðu þig á því.
Enn ljótari er hún að láta svona lagað gerast. Hún er ekki þess virði að eltast við hana, verandi með kærasta en að leika sér um leið með öðrum strák/um - því hvað veistu nema hún sé að leika sama hlutinn með fleirum en þér…
Aðeins hjartalaus manneskja færi svo illa með maka sinn að vera að dandalast með öðrum á meðan makinn ekki sér, “framhjáhald” er það ljótasta sem hægt er að hugsa sér. Sá/sú sem einu sinni stekkur til sunds framhjá maka sínum á nánast örugglega eftir að gera það aftur … og aftur og aftur. Slíkri manneskju verður mjög erfitt að treysta og slíkri manneskju myndi maður ekki vilja vera bundinn.
Kveðja:
Tigercop sem vonar að korkahöfundur hætti þessari skelfilegu heimsku að vera að eltast og hugsa um kærustur annarra og fari að leita sér að sinni eigin, einni sem er ekki þegar lofuð einhverjum öðrum. Er Tigercop kaldur og óvæginn? Já, hann segir satt og hreinskilningslega það sem hann hugsar, hörkulegt eða ekki - þar sem honum finnst það eiga við, en reynir þó ekki að vera með skítkast heldur frekar að reyna að opna augu þeirra sem lesa.