Þannig er mál með vexti að ég er hrifinn af bestu vinkonu minni þó að við séum búin að þekkjast aðeins í 1 1/2 ár. Hún var einhleyp þá og ég hefði getað trúað að það hefði getað eitthvað orðið á milli okkar þá en ég þorði aldrei að gera neitt.
Nokkru síðar byrjaði hún með eitthverjum gaur sem var náttlega frekar sárt en fyrir sirka 2 mánuðum hættu þau saman og ég vissi ekkert hvað ég átti að gera vildi ekki reyna notfæra mér stelpu í “ástarsorg” sérstaklega vinkonum mína, svo um daginn byrjaði hún aðeins að hitta annan gaur bara lítið sem ég vissi af ekkert það alvarlegt held ég, en þau eru ekki saman eða neitt.
Þá fannst mér kominn tími til að segja henni hvernig mér liði og hún vissi fyrst ekkert hvað hún ætti að segja, síðar fékk ég þetta að hún væri ekki að leita af neinu sambandi og hvort við gætum ekki ennþá verið þeir góðu vinir og við vorum, en málið er ég veit núna ekkert hvernig ég á að haga mér í kringum hana ogsf, reyna að láta þetta ekki hafa áhrif eða reyna að sýna henni að við gætum verið meira en vinir, ég veit fyrir víst að hún dýrkar mig og finnst ég vera mjög skemmtilegur en hvort að þetta sé bara slæm tímasetning.
afsakið hvað þetta er örugglega klesst ?