Mér finnst þetta nú ekki beint fréttnæmt… Af hverju kom ekki á mbl.is þegar kærastinn minn tíndi blóm handa mér á afmælisdaginn minn? :) nei ég segi svona…
Hehe.. Þessi gaur hefur bara verið eitthvað svo of mikið í sviðsljósinu miðað við hvað hann hefur gert lítið af viti. Hann er greinilega bara pínu athyglissjúkur, og allt í lagi með það svosem. (þá er ég t.d að tala um bloggið hans, sem hann veit að almenningur les, og allt í kjölfarið…)
En hey. Ef honum fannst þetta rómó, og henni líka, þá er mér alveg sama. Þau eru örugglega bæði jafn shallow, og góð saman :)
Ég ætla ekki að fara að vera með alhæfingar í samb. við rómantík. Það er misjafnt hvað höfðar til fólks. Persónulega myndi ég ranghvolfa augunum , og hætta að anda ef kærastinn minn myndi gera þetta ;P
…og nei, ég er ekki bitur, og ekki afbrýðissöm. Ég hef reyndar bara gaman að þessu! Þetta fær mann allavega til að brosa ;)
“Imagination is the only weapon in the war against reality.”