Böns af þeim..
Fyrst áhvað hann að keyra í um 3-4 tíma til að skutla mér heim úr vinnunni í helgarfrí, (ég var rétt hjá Borgarnesi og hann á Akureyri) sem endaði með Reykjavíkurferð.
Svo ákvað hann að koma í suprise heimsókn til mín í vinnuna nokkrum dögum seinna þar sem ég gleymdi símanum í bílnum hjá honum, stóð í dyrunum heillengi og horfði á mig sópa, ég hélt ég væri að sjá ofsjónir þegar ég sá hann.
Áhvað að gefa mér mjög svo öðruvísi gjöf í tilefni af því að við værum búin að vera saman í heila 10 daga, gjöfin reyndist vera tvö klámblöð sem mér voru rétt frammi fyrir vinnuveitendum mínum =)
Hann hætti í neyslu sem hann hafði verið í í mörg ár, man ekki hvort þau voru 9 eða 11.
Tók mig með sér í roadtrip, þó hann væri próflaus, aðalega í þeim tilgangi að sýna mér eftirlætis staðinn sinn á landinu, Ísafjörð, sem endaði með því að við sváfum í bílnum fyrir utan lögreglustöðina, bíllinn var kyrrsettur þar..
Hringir úr fangelsi oft á kvöldin, eftir að símanum er lokað, stelst í símann bara til að segjast elska mig og bjóða góða nótt, það voru yndisleg símtöl.
Svo skrifaði hann mér langt bréf þaðan, ofboðslega sætt bréf, skrifaði svo mömmu minni bréf sem ég fékk að lesa eftir á, ég táraðist af því, þá var hann að segjast vona að einn daginn gæti hún orðið ánægð með okkar samband en í augnablikinu vill hún frekar að ég sofi í hrossataði þar sem ég eigi á hættu að eitthvert hross stigi ofan á mig, það voru hennar eigin orð, kærasti minn sagði mér að segja henni eins og er að hann myndi leggjast með mér í taðið =)
Man ekki meira en það er endalaust af svona spes en yndislegum mómentum. Bæti kannski einhverjum við, en ég er eins og er að skrifa niður sögu sambands okkar þar sem flest verður rifjað upp =)