Sumir myndu segja að maður gæti t.d. ekki elskað fyrr en maður væri…segjum bara 18 ára, afþví að þeim fannst þau sjálf ekki vera tilbúin til þess fyrr en þá. Og þá er bara einn af þessum fáránlegu hlutum í gangi, fyrst að þau gátu það ekki áður, þá getur það enginn.
Á meðan aðrir urðu ástfangnir og elskuðu þegar þeir voru 14 ára. Þá kannski trúa þessir “18 ára” því ekki, einfaldlega því þeir sjá það ekki fyrir sér.
Það eru ekkert allir eins og því ekki hægt að segja fyrir um ákveðinn aldur ;).
Vona að þú hafir skilið hvað ég var að reyna að skrifa :P.
Bætt við 4. september 2007 - 12:18
Æjj, þetta er dáldið óskýrt :/ :P.
En ég er s.s. að tala um afhverju sumt fólk segir að maður geti ekki elskað ungur. Það er útaf því að það gat það ekki sjálft og trúir ekki að aðrir geti “betur” en þau ;).