Hann var að vinna á Íslandi og ég var ein hérna í Dk. En ég vaknaði þennan dag sendi honum Sms og sagði til hamingju og eitthvað og svo gerði ég mig klára í það að drepa tíman í enn einn dag.
Svo allt í einu kallar stjuppabbi minn mig upp og ég bara eitt, “Oh, hvað á ég núna að fara að þræla?” svo þegar að ég kem upp heldur stjúpi á risastórum blómvendi og ég bara frá hverjum er þetta? Fór svo niður og opnaði kortið og á því stóð “Fordi jeg ikke kunne være der <3” s.s af því að ég gat ekki verið þar. Og ég fór bara að gráta og hringdi í hann ekkert smá happy. Hafði aldrei búist við þessu :P