Auðvitað áttu einhvern tímann eftir að finna stelpu, enda hefuru allt lífið til þess :)-það eru fleiri fiskar í sjónum en þessi stelpa ;)
Ég hef lent í svona svipuðu..eða í mínu tilfelli byrjaði strákurinn ekki með annari stelpu.
strákur jafn gamall mér, með mér í bekk í grunskóla og svo í tímum í framhaldsskóla og svona vorum góðir vinir og töluðum oft saman. Hann virkaði mjög oft eins og hann hefði áhuga á mér og eitthvað væri á milli okkar. Þegar ég frétti frá vini hans að hann hefði áhuga á mér, þá sagði ég honum á móti að ég hefði líka áhuga á honum. Þá hætti hann að tala við mig og talaði ekki við mig í svona einn og hálfan mánuð! -af hverju? myndi maður ekki frekar gera eitthvað í því?
allavegana..hann byrjaði að tala við mig aftur og alltaf að gefa í skyn að hann hefði áhuga og svona. Eitt kvöldið fórum við að tala um þetta og hann sagðist hafa áhuga, og ég spurði hvort við ættum þá ekki að gera eitthvað í því. Hann virkaði jákvæður á það og þegar aaaallt var að smella saman kom “eigum við ekki bara að vera vinir?” -vinir, mæ es! váá, getur ekki ýmindað þér hvað ég varð sár!
heh, komið nóg? :)
“a moo point…yeah, it's like a cow's opinion”