Mjööög flott lag og gaman að hlusta á það:)

Hvítur kjóllinn, slör sem dregur dilk á eftir sér.
Blóm í vendi, veit þau munu fölna á undan mér.
Ég veit þú ert að leita að mér, ó já
þú veist bara ekki að ég er hér.

Við munum ganga inn kirkjugólfið,
ég segi já ef þú einhvern tíma munt finna mig.
Þá eilíf hamingja, basl og klúður
ó, segðu já ef þú einhvern tíma munt finna mig.

Ég geng í hringinn, veit ekki hvort mér tekst að finna hana.
En blóm fölna í vendi og brosin stirðna á veislugestunum.

Ég veit hún er að bíða mín,
ég veit bara ekki hvar hún er.

Við munum ganga inn kirkjugólfið,
hún segir já ef ég einhvern tíman mun finna hana.
Þá eilíf hamingja, basl og klúður
ó, segðu já ef ég einhvern tíma mun finna þig.

(Munum stíga brúðkaupsdansinn)
Munum stíga brúðkaupsdansinn
ég segi já ef þú einhvern tíma munt finna mig.


Bætt við 28. apríl 2007 - 16:20
Og þetta er lag eftir “Todmobile” eða í fluttningi þeirra!