Vá. Þetta er rosalega skrítið. Ég á kærasta og ég elska hann meira enn allt ! Svo kem ég í heimsókn til hans og þá er þessi rosalega sæti strákur þarna hjá honum.
Svo fórum við bara eitthvað að spjalla og hann var rosalega skemmtilegur. Ég gat ekki hætt að horfa á hann og mér leið rosalega vel nálægt honum. Fékk msnið hans og hef talað mikið við hann bæði á msn og í símann.
Núna er ég rosalega ráðvillt! Ég elska kærastann minn svo rosalega mikið, en þessi strákur er bara.. svo frábær ! Mér líður rosalega illa útaf þessu og mér finnst mjög erfitt að leyna kærastanum mínum þessu öllu.
Veit að ég hljóma eins og total slut..
Þetta er bara svo erfitt !!
Bætt við 21. apríl 2007 - 14:06
ég er alveg hætt að pæla í hinum gaurnum.. Ég held að ég hafi ekkert verið hrifin af honum meira eins og… æji ég veit það ekki. Ég er allavega hætt að tala við hann og allt. Hann er ömurlegur!