Frumsaminn texti eftir mig og Helga vin minn við lagið Lonestar - Amazed

Er augu okkar mætast,
fer hjarta mitt að æsast.
Ég get ei þolað mikið meir.

Undir fögrum stjörnum,
á vegi okkar förnum.
Svo margt sem minnir mig á það.

Þá get ég fundið fyrir ástinni,
og inn'í mér,
sérhvert andartak,
verður draumastund.

Ég fæ ei skilið allt sem þú ert,
þú getur mig snert,
líkt og engin önnur.

Hvar sem ég í lífinu er,
er myndin af þér,
efst í mínum huga.

Fegurð þín í ljósum loga,
gerir mig agndofa.

Það býr inn'í þér friður,
sem ljúfur lækjaniður.
Hann færir hjarta mínu ró.

Ég veit að okkar bíður heimurinn,
og draumurinn.
Þessu máttu trúa,
trúa á okkur tvö.

Ég fæ ei skilið allt sem þú ert,
þú getur mig snert,
líkt og engin önnur.

Hvar sem ég í lífinu er,
er myndin af þér,
efst í mínum huga.

Fegurð þín í ljósum loga,
gerir mig agndofa.
Gaui