Já í tilefni af því að ég og kallin eigum 10 mánaðardag í dag, langaði mig að deila sögu okkar með ykkur hugurum :D

Þið sem nennið að lesa, enjoy.

Þetta byrjaði allt fyrir, um það bil 3 árum þegar að við hittumst fyrst, besti vinur minn þekkti hann og þegar að litli bróðit besta vinar míns átti afmæli var okkur boðið, bæði mé rog honum.
Hann segir í dag að honum hafi litist vel á mig frá því að hann sá mig fyrst og hann reyndi alltaf að sitja við hliðina á mér í afmælinu.
Við töluðum ekkert saman í afmælinu ef é gman rétt, vorum bæði mjög feimin og svona.

Svo næst þegar að ég hitti hann, eyðilagði ég nokkurnveginn allt. Ég kendi bróðir hans um að hafa hellt niður á mig og lamdi bróðir hans :S Sem að endaði í því að hann kallaði mig þroskahefta og eitthvað.

Síðan töluðum við ekkert við hvort annað þangað til í ca. nóvember í hitt í fyrra, þá fór ég nefnilega eitthvað að dúllast með vini hans, og urðum við vinir aftur þá. Svo hætti þessi vinur hans að tala við mig og hann hætti því þá líka.

Svo þekkir hann bestu vinkonu mína á íslandi (Búum bæði í Dk) Og í gegnum hana gat ég talað við hann aftur, það var þá í febrúar í fyrra.
Allt gekk vel, og ég varð mjög hrifinn af honum, vissi ekki með hann. En svo kom vinkona mín frá Íslandi í heimsókn og ég kynnti þau fyrir hvort öðru og þau urðu ekkert smá hrifinn af hvort öðru, og ég var mjög viss um að það myndi aldrei gerast neitt á milli okkar þannig að ég hjálpaði vinkonu minni að tala við hann og svona, en á þeim tíma talaði ég við hann í ca klukkutíma á dag, um stelpuna og margt og mikið. Við vorum orðin bestu vinir.
Svo fer þessi stelpa heim og enþá tala ég meira og meira við hann. Og ég segi honum að ég sé hrifinn af honum en við ákváðum að gera ekki neitt úr því vegna þess að hinn stelpan var inní þssu öllu.

Svo einn dagin, rétt áður en að ég var að fara til Íslands yfir sumarið til þess að vinna.
Þá fór ég í heimsókn til hans, og ég gat eiginlega ekki haldið þetta út lengur þannig að ég fór að reyna smá við hann, með því að stríða honum og svona.
So þetta kvöld átti ég að taka síðasta strætó heim, en sá strætó kom aldrei. Þannig að ég þurfti að gista hjá honum, sem að ég hafði alveg gert áður bara aldrei ein.
Þessi nótt byrjðai þannig að mér var kalt á tánum og setti fæturnar undir sængina hans til hans og svo fórum við alltaf nær hvort öðru héldumst í hendur og kysstumst. Svo dekraði hann mig alla nóttina og ég sofnaði seint um nóttina í höndum hans.

Svo dagin eftir vorum við bara byrjuð saman, ég þurfti að fara heim mjög snemma, en hann kyssti mig og ég fór. Daginn eftir hittumst við aftur heima hjá mér, þetta var dagin áður en að ég átti að fara til Íslands, og ég vissi það að ég myndi koma til þess að sakna hans geðveikt mikið, þannig að þegar að hann fór að tala um það að ég væri að fara, þá fór ég að gráta. :S

So fór ég til Íslands, og gat ekki talað við hann á msn, vegna þess að talvan var sv léleg, þá var bara sent e-mail, svo einn dag þegar að ég er að vinna er kallað á mig og sagt að það sé síminn til mín, þá er þetta hann.
Ég var ekkert smá glöð yfir því að hann væri að hringja, svo spyr hann mig hvenar að ég er í reykjavík, og ég segi að ég væri að fara heim til Reykjavíkur eftir 2 daga, þá segir hann að hann sé að koma til Íslands, ég hoppaði gersamlega upp í loftið og var ekkert smá glöð, hann kom svo.

Við vorum mikið saman.

Svo fór eg heim, og hann kom nokkrum dögum seinna.

Núna erum við enþá saman, elskum hvort annað og allt gengur vel:D

Langaði bara að létta aðeins á mér:D
Finnst þetta svo æðisleg saga :P

Takk fyir mig
Ég elska þig Sævar <3