Ég hef alltaf verið hræðileg í að gefa fólki afmælisgjöf, ég einfaldlega kann ekki að velja góðar gjafir.
Kærastinn minn verður tvítugur á morgun, og ég er í vandræðum með hvað ég get gefið honum. Getur ekki verið alltof dýrt því ég er mjög fátækur námsmaður.
Hann er þessi Metal týpa, en ég get ekki gefið honum neitt tengt tónlist, því það sem hann hlustar á er svo rosalega underground að það fæst ekkert á Íslandi með þeim hljómsveitum. Og hann á líka flest alla diska sem honum langar í.
Myndi þyggja góð ráð frá ykkur, hvað ég gæti gefið honum, og kannski sagt hvað þið gáfuð kærustum ykkar, eða hvað þið fenguð gefins frá kærustunum ykkar.