Var of seinn á sundæfingu og bíllin var rafmagnslaus, hljóp eins og ég ætti lífið að leysa og hljóp á stelpu, hún datt, meiddi sig reyndar ekkert mikið, skráma á olnboga, ég krotaði símanúmerið mitt á hendina á henni í flýti, ef hún vildi kæra mig (var eiginlega bara spaug) og hljóp í burtu, síðan hringdi hún í mig, sagðist ætla að kæra mig og svoleiðis og vildi hitta mig á fund með lögfræðing hennar, ég alveg rauður eins og epli skíthræddur hittumst og síðan komst ég að því að hún var bara að djóka líka og hún sagði í skaðabót skulda ég henni bíóferð, þannig basicly byrjaði það (hljómar svoldið hollywood-lega, núna þegar ég segi frá þessu ;D)
Bætt við 9. mars 2007 - 13:19
Ok, hljómar svolítið asnalega að ég hljóp á hana, það gerðist þannig að hún stóð á horni, alveg bláblindu horni sem ég hljóp fyrir. Síðan uppá svona gamanið, komst að því að hún æfði líka sund og svona, en það var nokkrum dögum seinna!