Hehe ooo ég man þegar ég var að bíða eftir því að kærastinn minn hringdi í mig! (semsagt áður en við byrjuðum saman). Hann einmitt notaði þessa 3 daga reglu og vinkona mín bannaði mér að hringja í hann sjálf (hann gæti tekið því sem uppáþrengjandi eða eitthvað svoleiðis). Þetta voru sko lengstu dagar lífs míns!
Svo á þriðja degi þá hringdi hann meðan ég var í vinnunni - að þrýfa klósett. Þetta var voðalega svona bíómyndalegt eitthvað, ég alveg “AAAA hann er að hringja” við vinkonu minni og þorði ekki að svara :Þ Lét hann hringja smá og svaraði síðan, ýkt yfirveguð eins og ég væri sko ekkert að bíða eftir þessu símtali hehe.
Þessi regla virkar ;P