Sæl raggap.
Sem eitt af fyrstu stefnumótum myndi ég ekki mæla með sundi. Mjög margir eru “svekktir” yfir hinu og þessu á líkama sínum, hvort sem einhver ástæða er fyrir því eða ekki, og myndu því eflaust ekki vilja þurfa að vera meðvituð um það á fyrstu stefnumótum.
Það er um að gera að velja einhvern stað þar sem báðum aðilum líður vel svo að ekkert sé til fyrirstöðu fyrir þeim samskiptum sem báðir aðilar eru að sækjast í og vonast eftir.
Ég leyfi mér benda þér á grein mína:
Hvernig skal nálgast hitt kynið; ráðleggingar fyrir bæði kynin:http://www.hugi.is/romantik/providers.php?page=view&contentId=3942048Þar fyrir innan eru ýmsar hugmyndir og ráðleggingar varðandi hvernig sé gott að aðhafast þegar kemur að fyrstu skrefum í samskiptum við hitt kynið.
Kær kveðja og gangi þér vel.
Fróðleiksmoli