Smá athugasemd, þegar þú ert að skrifa grein/kork hérna, þá skaltu vanda þig mjög vel ef þú vilt fá góð svör. T.d. nota Stóran staf, punkt, kommu, íslenska stafi sem og engar ensku slettur gerir það að verkum að þú færð mun betri svör.
En að mínu mati ættiru að vera hreinskilinn við hana og segja henni hvernig þér líður. Hreinskilni er alltaf best að mínu mati, auk þess ef þú virkilega vilt meira en vinskap þá muntu sjá eftir því seinna ef þú gerir ekkert. Ef þú ert of feiminn til að segja henni þetta, þá getur t.d. msn hjálpað, þó ég mæli frekar með að hitta hana og segja henni þetta. Varðandi strákana, það getur táknað að hún sé að kanna áhugann þinn en ekki gera ráð fyrir því.
En ef þú segir henni nú frá þessu, gefðu henni tíma. Ólíklegt að hún hoppi strax í fangið á þér. Hún þarf tíma til að melta þetta þar sem þið eruð vinir.
Annars mæli ég með að þú lesir póstana hjá Frodleiksmoli.
Vonandi hjálpar þetta þér eitthvað :)