Eitt lítið ljóð eftir mig sjálfan.

~

Það kvöld sem þú lagðist sáttur með mér
sýndist mér augun þín glitra
Hendurnar heitu og armur þinn sver
hjarta mitt þreytta og bitra

Þú snertir mig ljúft og læddir að mér
„má ég við hlið þína standa?“
Með kulda í orðum ég kastað´ að þér
„mig karlmaður svíkur að vanda“

Í myrkrinu sit ég máttlaus og ein
minningar þungt á mér liggja
Í sjálfskaparvíti sökkva mín bein
dag einn mun Satan mig þiggja


~