Mér finnst þetta lag allveg bara mjög flott sko. Eitthvað við það sem er bara allveg magnað.
—–

hvernig er í paradís
hvenær mun mín stjarna lýsa
eins og þín
er dagur dvín

þennan dag ég man það enn
engum öðrum um að kenna
nema mér
þann kross ég ber

þú baðst mig um að bíða þín, að staldra aðeins við
ég gekk að því sem vísu að þú værir mér við hlið

en hún
sem öllu eirir og af sér gefur

sem höndum sínum lífið vefur
segir mér þú bíðir mín
hjá sér í paradís

lýsir mér um langan veg
lofar mig og prísar þegar
rétt er breytt
og röngu eytt

lærir sá er lifir hér
langanir sem bærast eru
hér og hvar
sem þú sért þar

hún fylgir mér á endanum í áttina til þín
því eilífðin er framundan ég veit hvað bíður mín

en hún …
Cinemeccanica